Þrír leikir fóru fram í sænsku úrvalsdeildinni í gærkvöldi þar sem Íslendingaliðin Sundsvall Dragons og Jamtland máttu bæði þola ósigra. Með tapinu í gær missti Sundsvall frá sér toppsætið í deildinni.
Norrköping Dolphins 82-80 Sundsvall Dragons
Sundsvall varð að brjóta um leið og leiktíminn var að renna út svo Andrew Mitchell tryggði Norrköping sigurinn á vítalínunni án þess að drekarnir fengju nokkuð svarað fyrir sig. Pavel Ermolinski var stigahæstur hjá Sundsvall með 19 stig, 3 stolna bolta, 3 fráköst og 2 stoðsendingar. Hlynur Bæringsson bætti við 11 stigum og 6 fráköstum og Jakob Örn Sigurðarson var með 7 stig og 4 stoðsendingar.
Uppsala 96-86 Jamtland
Brynjar Þór Björnsson gerði 22 stig fyrir Jamtland í leiknum á rúmum 26 mínútum. Þá var hann einnig með 7 fráköst og 2 stoðsendingar.
Staðan í deildinni
1. Norrköping
2. Sundsvall
3. Boras
4. Uppsala
5. Kings
6. 08 Stockholm
7. LF Basket
8. Jamtland
9. Solna Vikings
10. ecoÖrebro