Rússar lögðu Argentínu áðan í bronsleik Ólympíleikanna í körfubolta og nú á eftir eða kl. 14:00 að íslenskum tíma mætast Bandaríkin og Spánn í úrslitaleiknum.
Lokatölur í viðureign Rússa og Argentínumanna voru 81-77 Rússum í vil þar sem Alexey Shved var stigahæstur hjá Rússum með 25 stig og Andrei Kirilenko bætti við 20 stigum. Hjá Argentínumönnum var Manu Ginobili atkvæðamestur með 21 stig.