Út er kominn nýjasti þátturinn af Run and Gun með fyrrum þjálfaranum og fjölmiðlamógulnum Máté Dalmay.
Með Máté í þessum síðasta þætti eru stuðningsmaður Vals Steinar Aronsson og ráðgjafi þjóðar Rúnar Birgir Gíslason. Upptökuna er hægt að nálgast hér á Spotify og þá er hægt að horfa á þáttinn á YouTube hér fyrir neðan. Í honum er meðal annars farið yfir tímabilið í Bónus deild karla, en úrslitakeppni deildarinnar hefst á morgun.
Hlaðvarpið gaf liðunum í 1. deild karla sem eru komin í sumarfrí fremur lágar einkunnir fyrir tímabilið, þar sem Snæfell stendur hæst með 5. Lið Fjölnis og Hauka fylgja fast á eftir með einkunnina 4, en Skallagrímur rekur lestina með einkunnina 3. Þessar tölur gefa til kynna að Run & Gun teymið telji að þessi lið hafi ekki náð að uppfylla væntingar eða hámarksárangur á nýafstöðnu móti og eigi talsvert verk fyrir höndum í uppbyggingu fyrir næsta tímabil.
Umræðuna er hægt að nálgast í síðustu upptöku af Run and Gun.






