Hlaðvarpið Run and Gun mætir aftur til leiks í beinni útsendingu þriðjudaginn 30. júní á Karfan.is, þar sem tekin verður ítarleg stöðuúttekt á Bónus deildinni. Í þættinum verður rýnt í fyrstu skref liðanna í undirbúningnum og farið yfir hvernig leikmannahóparnir eru að mótast.
Sannkölluð lagerúttekt fer fram á liðunum þar sem ræddar verða allar helstu hreyfingar sumarsins, jafnt á leikmannamarkaðnum sem og í þjálfarastólunum, en miklar breytingar hafa átt sér stað síðustu vikur.
Líkt og áður er það fyrrum þjálfarinn og fjölmiðlamógúllinn Máté Dalmay sem stýrir skútunni af sinni kunnu fagmennsku. Hann verður þó ekki einn á ferð, því með honum í stúdíóinu verða sérvaldir gestir úr efstu hillum sérfræðingasamfélagsins í körfuboltanum. Það er því útlit fyrir afar líflega og greinargóða umræðu sem enginn áhugamaður um íslenskan körfubolta ætti að láta framhjá sér fara.





