HomeFréttirRose vekur athygli á undirbúningstímabilinu í NBA

Rose vekur athygli á undirbúningstímabilinu í NBA

13:44

{mosimage}
(Rose)

Nýliðinn Derrick Rose sem í sumar var valinn fyrstur í nýliðavali NBA deildarinnar vakti töluverða athygli í nótt með Chicago Bulls á undirbúningstímabili deildarinnar. Bulls máttu reyndar sætta sig við ósigur gegn Dallas Mavericks 102-110 í United Center í Chicago. Rose gerði 10 stig, gaf 5 stoðsendingar og tók 3 fráköst í leiknum en þeir Luol Deng, Aaron Gray og Darius Washington voru allir með 14 stig hjá Bulls. Stigahæstur í sigurliði Mavericks var Gerald Green með 18 stig.

Þá fóru fjórir aðrir æfingaleikir fram í NBA deildinni í nótt og urðu úrslitin eftirfarandi:

Miami Heat 98-100 New Jersey Nets

Devin Harris með 21 stig fyrir Nets og þeir Dwyane Wade og Michael Beasley báðir með 21 fyrir Heat.

Houston Rockets 85-78 San Antonio Spurs
Malik Hairston gerði 10 stig fyrir Spurs en hjá Rockets var Ron Artest með 18 stig.

Utah Jazz 89-96 Phoenix Suns
Alando Tucker gerði 21 stig í útisigri Suns en hjá Jazz var Kyle Korver með 16 stig.

LA Lakers 80-107 LA Clippers

Mike Taylor skoraði 20 stig fyrir Clippers en hjá Lakers var Vladimir Radmanovic með 14 stig.

[email protected]

Fréttir
- Auglýsing -