Jalen Rose hefur verið sleppt úr fangelsi eftir að hafa setið inni í 16 daga vegna ölvunar við akstur. Hinn 38 ára gamli Rose hóf afplánun sína þann 2. ágúst síðastliðinn og þótti lögmanni hans refsingin full hörð.
Rose játaði í maí síðastliðnum sekt sína en þá hafði hann klessukeyrt bifreið sína undir áhrifum, kvaðst hafa drukkið sex Martini glös áður en hann ók af stað. Til að bæta gráu ofan á svart þá var Rose einnig tekinn fyrir of hraðan akstur sama dag og dómurinn yfir honum féll.
Rose starfar sem ,,analyst“ eða sérfræðingur hjá ESPN en hann á 13 ár að baki í NBA deildinni og sex þeirra voru með Indiana Pacers.




