Nýliðar Hauka gerðu góða ferð í Röstina í gærkvöldi er þeir skelltu Grindvíkingum í Iceland Express deild karla. Gerald Robinson fór mikinn hjá rauðum og setti frákastamet þetta tímabilið er kappinn reif niður 23 fráköst!
Robinson skipar þrjú efstu sætin á topp-frákastalistanum í deildinni en hann hefur mest tekið 23, 22 og 21 frákast í leik. Þá tekur Robinson flest fráköst að meðaltali í leik í deildinni með 14,6 fráköst í leik.
Þá má þess til gamans geta að eitt af þessum 23 fráköstum í gær tók Robinson er hann sat á gólfinu svo óhætt er að fullyrða að maðurinn sé einn albesti frákastari deildarinnar.
Mynd/ [email protected] – Robinson sækir að körfu Grindavíkur í gærkvöldi, Ryan Pettinella er til varnar.




