Hvaða áhrif hefur þessi sigur á liðið í komandi átökum í deildinni?
"Þetta hjálpar sjálfstraustinu okkar því við höfum verið í lægð uppá síðkastið. Þetta var stór sigur fyrir okkur og vonandi hjálpar það sjálfstrausti liðsins. Vonandi er þetta byrjunin á einhverju meira svo við getum tekið næstu leiki líka".
Það er nokkuð ljóst að ÍR ætlar sér sæti í úrslitakeppninni í ár?
"Já ég er nokkuð viss um að öll liðin þarna í kringum okkur eru að berjast um sæti í úrslitakeppninni sem gerir hvern leik þeim mun erfiðari".
Leikurinn varð vægast sagt svakalega spennandi á lokasekúndunum og Stjarnan ætlaði hvergi að gefa eftir, efaðistu einhverntíman um að liðið myndi vinna?
"Ég hafði mínar efasemdir en liðið mitt stóðst áhlaupið, setti niður nokkur mikilvæg víti og við unnum leikinn".



