Þó kappinn hafi verið kominn á Klakann misfórst það aðeins hjá okkur að kynna ykkur fyrir nýjasta liðsmanni silfurliðs Þórs úr Þorlákshöfn. Sá heitir Robert Diggs og lék með Þórsurum á Valsmótinu um helgina.
Diggs er rétt rúmlega tveggja metra framherji og lét nokkrum sinnum reyna á burðarþolið í körfum Vodafonehallarinnar. Hann útskrifaðis úr George Washington háskólanum árið 2009 og hefur m.a. reynt fyrir sér í Hollandi og í næstefstu deild í Ísrael síðan hann kom úr skóla.