spot_img
HomeFréttirRiðlakeppninni lokið í London

Riðlakeppninni lokið í London

Þá er riðlakeppninni lokið í karlakörfuboltanum á Ólympíuleikunum sem fara nú fram í London. Bandaríkjamenn höfðu öruggan sigur í A-riðli og unnu alla leiki sína en Rússar höfðu sigur í B-riðli, unnu fjóra leiki og töpuðu einum líkt og Brasilíumenn. Lokadagur riðlakeppninnar var í gærkvöldi sem lauk með viðureign Bandaríkjanna og Argentínumanna þar sem lið Bandaríkjanna vann öruggan 29 stiga sigur, 126-97.
Átta lið eru komin áfram og mætast í 8-liða úrslitum á morgun, 8. ágúst. Þessi lið mætast:
 
Brasilía-Argentína
Bandaríkin-Ástralía
Frakkland-Spánn
Rússland-Litháen
 
Spánverjinn Pau Gasol leiðir mótið í stigaskori með 20,6 stig að meðaltali í leik, Kínverjinn Yi Jianlian er frákastahæstur með 10,2 fráköst í leik, Marcelinho Huertas frá Brasilíu er með flestar stoðsendingar eða 6,2 í leik og Bandaríkjamaðurinn Chris Paul stelur flestum boltum eða 2,2 að meðaltali í leik. Flest varin skot í leik á Túnisinn Salah Mejri með 3,4 að meðaltali.
 
Lokastaða riðlakeppninnar:
 
A-riðill
Rk Team GP Pts
1 5 10
2 5 9
3 5 8
4 5 7
5 5 6
6 5 5
 
B-riðill
Rk Team GP Pts
1 5 9
2 5
Fréttir
- Auglýsing -