spot_img
HomeFréttirRiðill Íslands í undankeppni HM klár

Riðill Íslands í undankeppni HM klár

Dregið var í dag í forkeppni að HM 2023 hjá karlalandsliðinu í körfuknattleik en liðið mun hefja keppni í febrúar.

Ísland endaði í riðli B með liðum Kósovó, Lúxemborg og Slóvakíu.

Tvö efstu liðin úr hverjum riðli fara áfram eftir leiki heima og að heiman í 2. umferð forkeppninnar en þar munu bætast við þau 8 lönd sem ekki komast á EM 2021 í gegnum undankeppnina þar en hún verður leikin í sömu landsliðsgluggum næstu tvö tímabil. (febrúar og nóvember 2020 og febrúar 2021).

Fyrsti landsliðsglugginn verður í febrúar 2020, dagana 17.-25. febrúar.

Fréttir
- Auglýsing -