HomeFréttirRiðill Íslands galopinn eftir úrslit kvöldsins

Riðill Íslands galopinn eftir úrslit kvöldsins

Úrslit kvöldsins í J-riðli undankeppni HM 2027 hleypa mikilli spennu í baráttuna um sæti á lokamótinu. Tyrkir héldu áfram sigurgöngu sinni og unnu öruggan heimasigur á Litháum, 94:66, á meðan Bosnía og Hersegóvína náði í mikilvægan og dramatískan tveggja stiga heimasigur gegn Ítalíu, 78:76.

Tyrkland er í kjörstöðu á toppi riðilsins með fullt hús stiga eftir sjö leiki og virðist vera að stinga af. Serbía fylgir á eftir í öðru sæti, en fyrir neðan er gríðarlega mikil og jöfn barátta milli hinna liðanna. Ítalía, Litháen, Ísland og Bosnía og Hersegóvína eru öll í einum hnapp og enn eru fimm leikir eftir hjá hverju liði. Nóg er því af stigum í pottinum og baráttan um þriðja og síðasta lausa farmiðann á heimsmeistaramótið í Katar 2027 er galopin.

Hérna er staðan í riðlinum

Fréttir
- Auglýsing -