spot_img
HomeFréttirRichi tekur við landsliði Túnis

Richi tekur við landsliði Túnis

Ricardo “Richi” Gonzalez Dávila hefur verið ráðinn landsliðsþjálfari Túnis fyrir komandi afríkukeppni kvenna sem fram fer á árinu. Richi þekkja flestir körfuknattleiksáhugamenn en hann stýrði liði Skallagríms eftirminnilega árið 2017-2018 í Dominos deild kvenna.

Síðan þá hefur hann starfað hjá Keflavík við yngri flokka þjálfun við góðan orðstýr en hefur ný fengið nýtt þjálfara starf í Túnis. Richi er 48 ára Spánverji sem hefur komið víða við á löngum þjálfaraferli sínum. Hann þjálfaði landslið Chile, Úrúgvæ og Norður Kóreu auk þess að vera sigursæll þjálfari í Chile, Bólivíu og Spáni.

Fréttir
- Auglýsing -