spot_img
HomeFréttirReykjanesmót: Njarðvíkursigur gegn Haukum

Reykjanesmót: Njarðvíkursigur gegn Haukum

 Njarðvíkingar fóru með sigur gegn Haukum í kvöld í Reykjanesmótinu 85:80.  Leikurinn var harður á báða bóga og ætluðu Haukamenn sér allt annað en að láta vaða yfir sig.  Á tíma leit út fyrir hinsvegar að Njarðvíkingar væru komnir með sigurinn vísan en þá smelltu Haukar fjórum þristum í röð og komu sér aftur inn í leikinn. 
 Loka kafla leiksins voru það hinsvegar Njarðvíkingar sem voru skynsamir og lönduðu sem fyrr segir 85:80 sigri.  Þrátt fyrir að barátta hafi verið mikil þá voru ansi skemmtileg tilþrif á báða bóga eins og sést á forsíðu mynd þessarar fréttar. 
 
Njarðvíkingar betri aðilinn þegar á heildina er litið en nokkuð ljóst að þetta Haukalið mun ekki dvelja lengi í 1. deildinni
 
Hjá Njarðvík var Jeron Belin með 24 stig og 13 fráköst og Elvar Friðrikson kom honum næstur með 19 stig
 
Í Haukaliðinu var Aavon Williams þeirra atkvæðamestur með 27 stig og 5 fráköst. 
 
 
Mynd: Jeron Belin lyfti sér yfir Þorstein Finnbogason og tróð með látum ásamt því að fá villuna. Veggspjald?
 
 
frétt/mynd: [email protected]
 
 
Fréttir
- Auglýsing -