spot_img
HomeFréttirReykjanes Cup: Grindavík sigraði Njarðvík

Reykjanes Cup: Grindavík sigraði Njarðvík

 Þessa dagana stendur yfir í Reykjanesbæ, Reykjanes Cup þar sem að Grindavík, Keflavík, Njarðvík og Snæfell etja kappi í þessu árlega móti.  Nú í kvöld voru það Grindvíkinga sem sigruðu Njarðvík 78:73 og sem stendur er leikur Snæfell og Keflavík þar sem Snæfell hafði komið sér í þægilegt 20 stiga forskot í fyrri hálfleik. 
Í gær voru 2 leikir þar sem að Grindavík sigraði Keflavík og Njarðvíkinga sigruðu Snæfell.  Síðustu leikir mótsins fara fram á morgun þar sem að Keflavík og Njarðvík mætast og svo Snæfell og Grindavík. 

Mynd: Úr leik Njarðvík og Grindavík í kvöld

 
Fréttir
- Auglýsing -