HomeFréttirRebekka, Hulda og Ísey tilnefndar á EuroBasket – Hér getur þú kosið

Rebekka, Hulda og Ísey tilnefndar á EuroBasket – Hér getur þú kosið

Þær Rebekka Steingrímsdóttir og Hulda María Agnarsdóttir hafa báðar verið tilnefndar sem verðmætasti leikmaður mótsins (MVP) í opinberri stuðningsmannakosningu FIBA á EuroBasket í Rúmeníu.

Rebekka hefur farið vel af stað á mótinu og er meðal allra stigahæstu leikmanna þess, en hún skorar að meðaltali 20,5 stig í leik (3. sæti yfir mótið allt), auk þess að skila 5,3 fráköstum, 4,0 stoðsendingum og 5,8 stolnum boltum á leik.

Hulda María hefur sömuleiðis leikið frábærlega og sýnt mikla breidd í sínum leik. Hún er í 3. sæti yfir alla leikmenn mótsins í stoðsendingum með 4,8 á leik, ásamt því að skila 12,8 stigum, 7,5 fráköstum og 4,0 stolnum boltum að meðaltali.

Þá á Ísland annan fulltrúa í tilnefningunum, þótt hún klæðist búningi annarrar þjóðar. Ísey Guttormsdóttir Frost er einnig á listanum yfir tilnefnda leikmenn, en hún er íslensk þó hún leiki fyrir breska landsliðið á mótinu.

Tilnefning þeirra er mikill heiður og staðfesting á frábærum árangri. Nú er komið að stuðningsmönnum að láta í sér heyra – hægt er að taka þátt í kosningunni á vef FIBA og greiða atkvæði áður en tilkynnt verður um niðurstöðuna á sunnudaginn.

Hérna er hægt að kjósa

Fréttir
- Auglýsing -