HomeÚti í heimiEvrópaReal Madrid jafnaði metin

Real Madrid jafnaði metin

Spánarmeistarar Real Madrid völtuðu yfir lið Tenerife á útivelli í kvöld þegar liðin mættust í átta liða úrslitum spænsku efstu deildarinnar í körfuknattleik. Eftir stórsigur Madrídinga, þar sem lokatölur urðu 118:83, er staðan í einvíginu jöfn 1:1. Þar sem vinna þarf tvo leiki til að komast áfram í undanúrslit munu liðin mætast í hreinum úrslitaleik um komandi helgi á heimavelli Real Madrid.

Landsliðsmaðurinn Elvar Már Friðriksson átti heldur hljótt uppdráttar í liði Tenerife í leiknum. Hann fékk að spila í samtals tíu mínútur í kvöld og skilaði á þeim tíma tveimur stoðsendingum auk þess sem hann tók tvö fráköst.

Fréttir
- Auglýsing -