Valsmenn fengu aldeilis skell í kvöld þegar þeir mættu í IceMar höllina í Njarðvík og öttu þar kappi við heimamenn í Bónusdeild karla. Þeir rauðklæddu sáu í raun aldrei til sólar þetta kvöldið á meðan heimamenn í Njarðvík léku á alls oddi og rúlluðu úr húsi með 32 stiga sigur, 110:78. Tölur sem líkast til fáir bjuggust við.
Það var kannski rétt í byrjun þegar Valsmenn sóttu niður á blokkina í Njarðvík og Callum Lawson setti auðveld stig að einhver héldi að þetta yrði langt kvöld fyrir þá Njarðvíkinga. En þar við sat hjá Valsmönnum má segja. Njarðvíkingar skiptu um ham í loka fyrsta fjórðungs og í öðrum voru þeir þá þegar komnir í 26 stiga forystu. Vissulega djúpt sokkið í holuna en þó alls ekki yfirstíganlegt með 20 mínútur enn eftir að körfubolta.
Njarðvíkingar hinsvegar gáfu aldrei færi á sér þetta kvöldið og virtist engu skipta máli hvaða leikmaður tók við keflinu því alltaf bætti við í forystuna fyrir þá Njarðvíkinga. Það var ákveðin deyfð yfir leik gestana í kvöld og ekki bætti á að þeir voru launlausir í þeim aðgerðum sem þeir gerðu jafnvel nokkuð vel. En sigur Njarðvíkinga verðskuldaður og aldrei í hættu.
Í skemmtilega jöfnu liði Njarðvíkinga í kvöld var það Dwayne Lautier sem skoraði mest eða 27 stig. Skástur í liði gestana var Keyshawn Woods með 24 stig en pirringur hans undir lok leiks lék hann grátt þegar hann fékk á sig óíþróttamannslega villu og þar með sína fimmtu.
Með sigrinum eru Njarðvíkingar komnir í 8. sæti deildarinnar en ekki er langt frá því að þeir voru jafnvel að skolast niður í fallbaráttu. Valsmenn sem voru að koma af ansi sterkur sigri á KR í síðustu umferð eru í 4. sæti deildarinnar.
Valsmenn klára Reykjanesbæinn í næstu umferð þegar þeir heimsækja Keflvíkinga en Njarðvíkingar halda í Þorlákshöfn þar sem þeir etja kappi við Þórsara sem slásts fyrir tilverurétti sínum í deildinni þessi dægur.





