spot_img
HomeFréttirRafmagnaður leikur í Ljónagryfjunni

Rafmagnaður leikur í Ljónagryfjunni

 
Bikarmeistarar Hauka heimsóttu stöllur sínar í Njarðvík í 8 liða úrslitum í Powerade bikarnum í einum skemmtilegasta leik vetrarins þar sem að Njarðvíkurstelpur sýndu svo sannarlega hvað í þeim býr. Shayla Fields fór á kostum en það var hún Anna María sem var þjófurinn að þessu sinni.
Haukastelpur byrjuðu betur og komust í mest 14 stiga forskot í öðrum leikhluta, en Njarðvíkustúlkur náðu að saxa þann mun niður í 6 stig og sá munur hélst að mestu þangað í lok leiks. Þegar 45 sek. voru eftir af leiknum og staðan 67-64 fyrir Hauka náði Shayla boltanum af þeim rauðklæddu, en það var brotið strax á henni og uppskar tvö víti þar sem að hún skoraði úr báðum og munurinn því einungis 1 stig.
 
Haukastúlkur fóru í sókn en braut Ólöf Helga strax á Kathleen og fór þar með útaf með 5 villur. Kathleen fór á vítalínuna og klúðraði fyrra vítinu, en skoraði úr því seinna.
 
Er 25 sek voru eftir tók Sverrir leikhlé. Njarðvíkustúlkur höfðu boltann og er 8 sek voru eftir átti Anna María þriggja stiga skot, eftir sendingu frá Árnínu Lenu, spjaldið ofaní! Njarðvíkurstelpur komnar yfir í fyrsta skipti í leiknum. Haukastelpur höfðu möguleika á að komast yfir en töpuðu boltanum og Njarðvíkurstelpur náðu boltanum en þá var brotið á Önnu Maríu og innsiglaði hún sigurinn úr víti – Hreint rafmagnaðar lokasekúndur í Gryfjunni.
 
Haukastúlkur áttu mjög góðan leik, þar sem að Kathleen var stigahæst með 23, en næst kom Íris með 16 stig og þar af 2 þrista.
 
Hjá Njarðvík áttu stelpurnar allar einnig góðan leik og spiluðu frábæra vörn, en einsog áður sagði var það Shayla sem að bar höfuð og herðar yfir stöllur sínar og sýndi hvað í henni býr.
 
Heildarskor:
 
Njarðvík: Shayla Fields 32/6 stoðsendingar, Ólöf Helga Pálsdóttir 9, Dita Liepkalne 9/8 fráköst, Anna María Ævarsdóttir 8, Ína María Einarsdóttir 8, Emelía Ósk Grétarsdóttir 2, Árnína Lena Rúnarsdóttir 2, Jóna Guðleif Ragnarsdóttir 0, Dagmar Traustadóttir 0, Eyrún Líf Sigurðardóttir 0, Erna Hákonardóttir 0, Ásdís Vala Freysdóttir 0.
 
Haukar: Kathleen Patricia Snodgrass 23/6 fráköst, Íris Sverrisdóttir 14, Þórunn Bjarnadóttir 10, Helga Jónasdóttir 8/8 fráköst, Ragna Margrét Brynjarsdóttir 6/4 fráköst, María Lind Sigurðardóttir 4/4 fráköst, Guðrún Ósk Ámundardóttir 3, Kristín Fjóla Reynisdóttir 0, Bryndís Hanna Hreinsdóttir 0, Dagbjört Samúelsdóttir 0, Sara Pálmadóttir 0, Gunnhildur Gunnarsdóttir 0.
 
Dómarar: Björgvin Rúnarsson, Eggert Þór Aðalsteinsson
 
Mynd/ Úr safni: Anna María Ævarsdóttir skoraði sigurstig Njarðvíkinga í dag.
 
Texti: GÓS
Fréttir
- Auglýsing -