HomeBónus deildinBónus deild kvennaRáðinn aðstoðarlandsliðsþjálfari kvenna

Ráðinn aðstoðarlandsliðsþjálfari kvenna

Körfuknattleikssamband Íslands hefur samið við Jamil Abiad um að taka við stöðu aðstoðarlandsliðsþjálfara kvenna. Samningurinn er í gildi út núverandi forkeppni fyrir EuroBasket 2029, sem lýkur í febrúar 2027.

Jamil, sem þjálfar meistaraflokk Vals í Bónus deild kvenna, mun samhliða starfa með yngri landsliðum Íslands og taka við stjórn eins þeirra sumarið 2027. Hann kemur þar með inn í þjálfarateymi kvennalandsliðsins undir stjórn Pekka Salminen aðalþjálfara, þar sem hann starfar ásamt Daníel Andra Halldórssyni aðstoðarþjálfara og Arnóri Gauta Ragnarssyni styrktarþjálfara.

Fréttir
- Auglýsing -