spot_img
HomeFréttirPoweradebikarinn

Poweradebikarinn

dNiðurröðun Powerademótsins í karla- og kvennaflokki liggur fyrir en keppnin fer af stað 28. september þetta árið. Niðurröðun mótsins fer eftir árangri liðanna frá síðasta tímabili og í karlakeppninni eru 12 lið í keppni, þar sem liðin fjögur sem fóru í undanúrslit tryggja sér heimaleik í 8 liða úrslitum en hin 8 leika einn leik á heimavöllum liða í 5. til 8. sæti.

Hjá stelpunum eru það öll 8 liðin úr Iceland Express deild sem taka þátt. Liðin sem fóru í undanúrslit sl vor leika á heimavelli í 8 liða úrslitum.

 

Niðurröðun hjá körlunum:

Fyrsta umferð:
1) KR – FSu Sunnudagur 28. september
2) Njarðvík – Breiðablik Mánudagur 29. september
3) Skallagrímur – Tindastóll Sunnudagur 28. september
4) Þór Ak – Stjarnan Mánudagur 29. september

8 liða úrslit:
5) ÍR – sigurv. úr 1) Þriðjudagur 30. september
6) UMFG – sigurv. úr 2) Miðvikudagur 1. október
7) Snæfell – sigurv. úr 3) Þriðjudagur 30. september
8) Keflavík – sigurv. úr 4) Miðvikudagur 1. október

Undanúrslit færu fram föstudaginn 3. október og úrslitaleikur sunnudaginn 5. október.

Niðurröðun hjá konunum:

8 liða úrslit:
1) Keflavík – Snæfell Sunnudagur 28. september
2) KR – Fjölnir Mánudagur 29. september
3) Grindavík – Hamar Mánudagur 29. september
4) Haukar – Valur Sunnudagur 28. september

Undanúrslit færu fram fimmtudaginn 2. október og úrslitaleikur sunnudaginn 5. október

Fréttir
- Auglýsing -