Hið árlega Póstmót Breiðabliks fer fram helgina 31 janúar – 1. febrúar næstkomandi. Mótið hefur fest sig í sessi sem eitt stærsta og glæsilegasta yngri flokka mót hvers árs og er fyrir iðkendur, stráka og stelpur, á aldrinum 6-11 ára. Keppt er í 6 aldursflokkum og fer mótið fram í Smáranum og Fagralundi.
Stig eru ekki talin en leikgleðin er í fyrirrúmi, hvert lið spilar sína leiki á um 3 klukkutímum og allir fá verðlaunapening og gjöf frá Póstinum. Einnig verða teknar liðsmyndir af öllum liðum.
Síðasti skráningardagur er mánudagurinn 26. janúar en skráningar skilast á netfangið [email protected] – þátttökugjald er 2500 kr á iðkanda.
Mótsreglur
· Leiktími er 2×12 mínútur
· 4 leikmenn eru inná í hvoru liði
· Skipta má inná hvenær sem er á leiktímanum
· Leikið er eftir minniboltareglum KKÍ
· Stig eru ekki talin
· Vörn er ekki leyfð fyrir framan miðju
· Ef brotið er í skottilraun er gefið eitt vítaskot
Dómarar Póstmótsins skulu..
· Vera virkir þátttakendur í leiknum og leiðbeina leikmönnum þegar það á við
· flauta hátt og segja leikmönnum skýrt hvað var dæmt og hver eigi boltann
· Ná í boltann við hvern dóm og afhenda í innkasti, gott að leyfa þeim leikmanni sem brotið var á að taka innkastið
· Leiðbeina leikmönnum hvar þeir eigi að standa í vítaskotum




