Árlegt Póstmót Breiðabliks verður haldið í Smáranum og Kórnum dagana 29. – 30. janúar. Tæplega 800 krakkar á aldrinum 6-11 ára munu keppa á mótinu og koma þeir frá 18 félagsliðum. Keppt verður á 3 völlum í hvoru húsi. Krakkar fæddir 2002-2004 keppa 4 inn á en eldri krakkar keppa 5 inn á í einu.
Finna má leikjaáætlun helgarinnar í Smáranum og í Kórnum hér í frétt hjá KKÍ og helstu upplýsingar til þjálfara og foreldra má einnig finna í frétt KKÍ.




