spot_img
HomeFréttirPóstmót Breiðabliks 28.-29. janúar

Póstmót Breiðabliks 28.-29. janúar

 

Hið árlega Póstmót Breiðabliks fer fram helgina 28.-29. janúar næstkomandi. Mótið hefur fest sig í sessi sem eitt stærsta og glæsilegasta yngri flokka mót hvers árs og er fyrir iðkendur, stráka og stelpur, 10 ára og yngri. Keppt er í 5 aldursflokkum og fer mótið fram í Smáranum í Kópavogi en þar er nýbúið að lakka parketið upp á nýtt og verður aðstaðan öll hin glæsilegasta.

 

Stig eru ekki talin en leikgleðin er í fyrirrúmi, hvert lið spilar sína leiki á um 3 klukkutímum og allir fá verðlaunapening og gjöf frá Póstinum. Einnig verða teknar liðsmyndir af öllum liðum.

 

Síðasti skráningardagur er mánudagurinn 20. janúar en skráningar skilast á netfangið [email protected], þátttökugjald er 2500 kr á leikmann.

 

Mótsreglur

· Leiktími er 2×12 mínútur

· 4 leikmenn eru inná í hvoru liði

· Skipta má inná hvenær sem er á leiktímanum

· Leikið er eftir minniboltareglum KKÍ

· Stig eru ekki talin

· Vörn er ekki leyfð fyrir framan miðju

· Ef brotið er í skottilraun er gefið eitt vítaskot

 

 

Fréttir
- Auglýsing -