spot_img
HomeFréttirPistons lögðu Orlando! Níu í röð hjá Hornets

Pistons lögðu Orlando! Níu í röð hjá Hornets

 
Tíu leikir fóru fram í NBA deildinni í nótt þar sem Detroit Pistons gerðu góða ferð til Orlando og lögðu heimamenn. Chris Paul og félagar í New Orleans Hornets unnu svo sinn níunda deildarsigur í röð þegar Kevin Durant og liðsfélagar í Oklahoma komu í heimsókn. Hornets eru nú í 3. sæti á vesturströndinni með 65% vinningshlutfall.
Orlando 96-103 Detroit
Þrír leikmenn voru með 20 stig hjá Pistons í nótt en þar voru að verki Tayshaun Prince, Tracy McGrady og Austin Daye. Dwight Howard gerði 20 stig og tók 16 fráköst hjá Orlando en stigahæstur var Ryan Anderson með 21 stig af bekknum á 26 mínútum. Fyrir leikinn í nótt hafði Orlando unnið fimm leiki í röð og átta leiki í röð á heimavelli.
 
New Orleans 91-89 Oklahoma
Hornets unnu sinn níunda sigur í röð í deildinni þar sem Chris Paul gerði 24 stig og gaf 9 stoðsendingar. Hjá Oklahoma var Kevin Durant með 22 stig og 8 fráköst. David West var hetja Hornets í leiknum með magnaða flautukörfu þegar hálf sekúnda var til leiksloka, ótrúlega erfitt skot þar sem kappinn stökk upp á öðrum fæti í vonlausri stöðu en setti skotið og níu í röð hjá Hornets.
 
Önnur úrslit næturinnar:
 
Nes Jersey 103-101 Cleveland (Cavs hafa tapað 17 leikjum í röð!)
Philadelphia 105-95 Phoenix
Toronto 98-100 Memphis
New York 115-106 Washington
Chicago 92-83 Milwaukee
Minnesota 125-129 Houston
Portland 81-96 Sacramento
Golden State 102-113 San Antonio
 
Mynd/ David West var hetja Hornets í nótt með magnaðri flautukörfu.
 
Fréttir
- Auglýsing -