HomeLandsliðinEuroBasket 2027Pekka eftir fyrsta sigurinn sem þjálfari Íslands ,,Varnarleikur Sigrúnar var stórkostlegur"

Pekka eftir fyrsta sigurinn sem þjálfari Íslands ,,Varnarleikur Sigrúnar var stórkostlegur”

Íslenska landsliðið tryggði sér afar dýrmætan og kærkominn sigur gegn Portúgal í Ólafssal í undankeppni EuroBasket 2027 þar sem lokatölur urðu 62-60.

Með þessum úrslitum hafnar Ísland í þriðja sæti síns riðils og munaði grætilega litlu að liðið tryggði sér sæti á lokamótinu. Möguleiki var á að komast áfram sem eitt af þremur bestu liðunum sem enduðu í þriðja sæti sinna riðla en í þeim samanburði endaði Ísland í fjórða sæti. Það er því ljóst að íslenska liðið var aðeins hársbreidd frá því að ná takmarkinu í þetta skiptið þótt niðurstaðan hafi því miður ekki dugað til að tryggja áframhaldandi þátttöku í keppninni.

Hérna er meira um leikinn

Karfan spjallaði við Pekka Salminen þjálfara Íslands eftir að leik lauk í Ólafssal, en sigur kvöldsins var hans fyrsti sem þjálfari liðsins.

Fréttir
- Auglýsing -