Landsliðsmaðurinn Pavel Ermolinski getur fagnað því nú hefur fengist staðfest að nýja félagið hans í Svíþjóð, Norrköping Dolphins, mun leika í Euro Challenge keppninni á næstu leiktíð. Pavel sem lék með Sundsvall Dragons á síðasta tímabili samdi nýverið við Norrköping.
Það eru Södertalje Kings og Norrköping Dolphins sem taka munu þátt í keppninni en það á eftir að ráðast hvort liðin taki þátt í undankeppninni eða fara beint í riðlakeppni.




