Hér að neðan sjáum við ansi skemmtilegt myndbrot af Paul George, einni stjörnunni úr bandaríska landsliðinu í körfubolta. Það er frá leikhléi í viðureign frá því í gærkvöldi gegn Venusúela. Á öllu er að sjá að Paul George, sem leikur með liði Indiana Pacers í NBA deildinni, hafi gleymt því að hann væri að spila með landsliðinu í Ríó og að þar væri ekkert fólk í vinnu við að henda tómum vatnsmálum fyrir hann.
Paul George forgot he's not playing in the NBA right now _x1f602__x1f602__x1f602_ #TeamUSA pic.twitter.com/BeV8nOE3CM
— ClutchPoints (@ClutchPointsApp) August 8, 2016
George, sem annars átti frábæran leik fyrir liðið (20 stig, 4 fráköst) í 113–69 sigri liðsins, bauð einnig upp á einhver fínheit inni á vellinum, eins og hægt er að sjá hér fyrir neðan.