HomeBónus deildinBónus deild karlaPatrick Joe Birmingham gengur til liðs við DME Academy í Wisconsin

Patrick Joe Birmingham gengur til liðs við DME Academy í Wisconsin

Hinn efnilegi Patrick Joe Birmingham hefur samið við bandarísku körfuboltaakademíuna DME Academy í Wisconsin og mun leika með liði skólans á komandi keppnistímabili.

Patrick Joe, sem er uppalinn í Njarðvík, hefur verið áberandi með yngri flokkum félagsins og á að baki leiki með yngri landsliðum Íslands. Hjá DME Academy fetar hann í fótspor annars efnilegs Íslendings, en KR-ingurinn ungi Benóný Stefán Andrason samdi einnig nýverið við skólann.

DME Academy er þekkt fyrir metnaðarfullt prógramm og leikmannaþróun sem hefur reynst ungum leikmönnum öflugur stökkpallur inn í bandaríska háskólaboltann (NCAA). Er þetta frábært tækifæri fyrir báða leikmennina til að vaxa á alþjóðlegum vettvangi og takast á við krefjandi áskoranir vestanhafs í vetur.

Fréttir
- Auglýsing -