12:30
Fjölmargir leikir fóru fram í NBA-deildinni í nótt og má helst nefna að San Antonio Spurs unnu sinn fyrsta leik í vetur með risaframlagi frá Tony Parker. Parker skoraði 55 stig í sigurleik gegn Minnesota Timberwolves sem réðist ekki fyrr en eftir 2 framlengingar.
Þá lögðu LA Lakers nágranna sína í Clippers að velli og hafa unnið fyrstu fjóra leiki sína, líkt og Utah Jazz og Detroit Pistons sem unnu sína leiki í nótt. Pistons voru án Allan Iversons en hann verður eflaust með liðinu á morgun. Þá má þess geta að Clippers hafa tapað fimm fyrstu leikjum sínum í deildinni. Hér fylgja úrslit næturinnar:
Detroit 100 – Toronto 93
Phoenix 113 – Indiana 103
Philadelphia 83 – Miami 106
Charlotte 98 – New York 101
Boston 96 – Oklahoma City 83
Atlanta 87 – New Orleans 79
Chicago 93 – Cleveland 107
Washington 104 – Milwaukee 112
San Antonio 129 – Minnesota 125
Portland 96 – Utah 103
Memphis 95 – Sacramento 100
Denver 101 – Golden State 111
LA Clippers 88 – LA Lakers 106
ÞJ



