HomeBónus deildinBónus deild karlaPanagiotis Filippakos í Keflavík

Panagiotis Filippakos í Keflavík

Keflavík hefur samið við gríska leikmanninn Panagiotis Filippakos um að leika með liðinu á komandi leiktíð.

Filippakos er 202 sentímetra hár framherji/miðherji sem hefur leikið með fjölmörgum sterkum liðum í heimalandinu, þar á meðal stórliði AEK Aþenu. Á síðasta tímabili átti hann afar gott gengi með Dafni í grísku A2-deildinni áður en hann tók ákvörðun um að semja við Keflvíkinga fyrir átökin í vetur.

Fréttir
- Auglýsing -