Skallagrímur tók 1-0 forystu í gærkvöldi gegn Hetti í undanúrslitarimmu liðanna í 1. deild karla. Vinna þarf tvo leiki til að komast í úrslitaseríuna en liðin mætast aftur annað kvöld og þá á Egilsstöðum. Karfan.is náði snörpu tali af Pálma Þór Sævarssyni þjálfara Skallagríms sem segir liðsmenn sína þurfa að leika betri vörn ef sigur á að vinnast fyrir austan.
,,Þetta gekk þokkalega framan af, sóknarleikurinn var fínn og fínt flæði hjá okkur. Allir að leggja sitt af mörkum en varnarleikurinn er klárlega eitthvað sem við þurfum að fara yfir, 99 stig á heimavelli er allt, allt of mikið. Þrátt fyrir að hafa verið yfir allan seinnihálfleikinn þá létu Hattarmenn okkur hafa fyrir þessu og gáfust aldrei upp þannig að ég býst við hörku leik og fullu húsi á Egilsstöðum á sunnudag. En við þurfum klárlega að spila betri vörn í leik tvö ef við ætlum okkur sigur," sagði Pálmi sem var þó ánægður með vörnina sem sínir menn léku gegn hinum öfluga Michael Sloan.
,,Við spiluðum reyndar ágætis vörn á Sloan megnið af leiknum en vorum kanski full mikið að einbeita okkur af því að stoppa hann."
Önnur undanúrslitaviðureign liðanna fer fram annað kvöld kl. 18:00 á Egilsstöðum.
Mynd/ Sigga Leifs: Frá viðureign Skallagríms og Hattar í gærkvöldi.




