HomeFréttirPálmi: Getum unnið öll lið þegar sá gállinn er á okkur

Pálmi: Getum unnið öll lið þegar sá gállinn er á okkur

,,Við erum enn að berjast fyrir okkar sæti í úrslitakeppninni þannig að það var vissulega að meiru að keppa fyrir okkur í kvöld heldur en Grindvíkinga. Við ætluðum alltaf að gefa okkur í þennan leik á meðan Grindvíkingar voru á heimavelli að fá afhentan deildarmeistaratitilinn þannig að við vildum líka sýna hvað í okkur býr," sagði Pálmi Freyr Sigurgeirsson leikmaður Snæfells í samtali við Karfan.is í kvöld eftir sigur Hólmara í Röstinni. Þetta var þriðji tapleikur Grindavíkur á tímabilinu en það mun þó ekki hafa nein áhrif á stöðu þeirra við toppinn og verða þeir þar uns kemur að úrslitakeppninni.
,,Byrjunin á tímabilinu var brösug hjá okkur en svo tókum við góða rispu eftir áramót, unnum einhverja sex leiki í röð og höfum verið eftir það að spila hörku leiki en með þessum sigri teljum við okkur vera komna í rétta átt," sagði Pálmi en er hann farinn að finna þefinn af úrslitakeppninni?
 
,,Svona rétt aðeins, manni er farið að hlakka mikið til en við erum í 6. sæti og á okkar svæði er mikið af jöfnum og sterkum liðum en Grindavík er í þessu efsta sæti og ég tel okkur alls ekki vera lakari en þau lið sem fyrir ofan okkur eru," sagði Pálmi og þá væntanlega ekki síðri kandíata en önnur lið í sæti Íslandsmeistara eða hvað?
 
,,Ég myndi segja að Grindavík gerði helst tilkall í titilinn en ég tel okkur eiga góðan séns ef við spilum eins og menn og við höfum sýnt það í vetur að við getum unnið öll lið þegar sá gállinn er á okkur en við getum líka tapað gegn hverjum sem er. Það er því mikilvægt að mæta klárir í alla leiki og vera rétt stemmdir.
 
  
Fréttir
- Auglýsing -