Pálína María Gunnlaugsdóttir sagðist alveg búin í skrokknum eftir átökin við Slóvakíu í gærkvöldi en gestir íslenska liðsins í Laugardalshöll voru fastir fyrir í varnarleiknum og komust upp með að spila fast. „Við vorum að láta ýta okkur og þá vorum við líka mjög stirðar í sókninni,“ sagði Pálína við Karfan TV eftir leik. Aðspurð um hvað hefði þurft til að gera betur þennan stutta góða kafla í fjórða leikhluta sagði hún: „Það vantaði túrbínuna í þetta.“
Mynd/ Þorsteinn Eyþórsson