Heil umferð er í Dominos deild kvenna í dag. Byrjun deildarinnar hefur verið stórskemmtileg þetta árið, þar sem að úrslitin eru oft á tíðum frekar óvænt. Í þessari umferð ber kannski hæst að nefna leik Hauka og Snæfells að Ásvöllum í Hafnarfirði, en þar eru á ferðinni liðin sem áttust við í lokaúrslitum síðasta tímabils.
Leikir dagsins:
Grindavík Njarðvík – kl. 19:15 í Mustad Höllinni
Keflavík Skallagrímur – kl. 19:15 í TM Höllinni
Stjarnan Valur – kl. 19:15 í Ásgarði
Haukar Snæfell – kl. 19:15 að Ásvöllum




