spot_img
HomeFréttirPakkinn þéttist í 1. deild: Skallagrímur lagði Hött

Pakkinn þéttist í 1. deild: Skallagrímur lagði Hött

 
Nokkuð þétt er orðið í kringum liðin á toppnum og í sætum úrslitakeppninnar í 1. deild karla. Skallagrímur lagði Hött frá Egilsstöðum að velli í dag 99-78 í Fjósinu í Borgarnesi og fyrir vikið eru þrjú lið í 3.-6. sæti deildarinnar með 12 stig, Þór Akureyri, Skallagrímur og Valur. Þór Þorlákshöfn er á toppnum með 18 stig og FSu í 2. sæti með 16.
Halldór Gunnar Jónsson var sjóðheitur í liði Skallagríms í dag og setti niður 35 stig, kappinn jarðaði 9 af 14 þriggja stiga skotum sínum í leiknum og setti niður 4 af 5 teigskotum, magnaður leikur hjá Halldóri sem á það til að hitna svo um munar.
 
Viðar Örn Hafsteinsson var svo stigahæstur hjá Hetti með 23 stig og Daniel Turrell gerði 22. Eftir tapði í dag er Höttur í níunda og næstneðsta sæti deildarinnar með 4 stig og klemman er ekki síður þétt á botninum þar sem fjögur lið skipa botnsætið! Leiknir, Ármann, Höttur og Laugdælir eru öll á botninum með fjögur stig svo afar forvitnilegt verður að fylgjast með innbyrðisviðureignum þessara liða nú þegar síðari hálfleikur mótsins er hafinn.

Staðan í deildinni

 
Mynd/ Sigríður Leifsdóttir: Borgnesingar höfðu öruggan sigur á Hetti í dag.
Fréttir
- Auglýsing -