HomeFréttirÓvíst með meiðsli Hildar: Allt gert til að koma henni aftur á...

Óvíst með meiðsli Hildar: Allt gert til að koma henni aftur á völlinn

Hólmarar urðu fyrir áfalli í gærkvöldi þegar leikstjórnandi þeirra, Hildur Sigurðardóttir, varð að yfirgefa leikvöllinn í leiknum gegn Haukum en Hildur meiddist á fæti um miðjan þriðja leikhluta. Ingi Þór Steinþórsson þjálfari Snæfells sagði í samtali við Karfan.is í morgun að allt yrði gert til þess að koma Hildi aftur inn á völlinn.
,,Hún heyrði smell í fætinum en hún snéri sig einmitt á þessum ökkla með KR á síðasta tímabili. Hildur telur að þetta sé jafnvel verra núna en í fyrra," sagði Ingi Þór en Hólmarar bíða nú eftir að koma Hildi til Reykjavíkur undir hendur réttra aðila.
 
Ingi Þór kallar ekki allt ömmu sína og þegar Hildur hafði fengið sína aðhlynningu inni á vellinum bar Ingi Þór hana af velli eins og sést glögglega í myndasafninu frá leiknum í gær eftir Þorstein Eyþórsson.
 
Aðspurður hvort Ingi væri í raun sterkari en hann lítur út fyrir að vera svaraði þjálfarinn léttur á manninn: ,,Þetta var gert í hita leiksins, ég er ekki viss um að Ólafur Torfason fengi sömu meðferð."
 
Snæfell jafnaði í gær Hauka og KR að stigum í deildinni en þessi þrjú lið berjast nú af mikilli hörku um sæti í úrslitakeppninni. Hildur er vitanlega einn af lykilleikmönnum Snæfells og við því búið að Stykkishólmur haldi niðri í sér andanum uns úrskurður fæst í meiðslin.
 
Mynd/ Þorsteinn Eyþórsson
Fréttir
- Auglýsing -