Óvíst er með hvort að nýjasti leikmaður ÍR, Kristinn Marínósson, leiki með sínum mönnum gegn Tindastól í næstu umferð Dominos deildar karla. Kristinn meiddist á hnéi á æfingu fyrir síðasta leik liðsins, en þar tapaði ÍR naumlega fyrir Stjörnunni. Að sögn er sjúkraþjálfari liðsins ekki bjartsýnn á að hann nái leiknum gegn Tindastól, en Kristinn ku vera að reyna allt sem hann getur til þess að vera leikfær.
ÍR er sem stendur við miðja deildina með eitt tap og einn sigur eftir tvær fyrstu umferðirnar.




