Fjölnir varð í dag VÍS bikarmeistari í 9. flokki drengja eftir sigur á ÍA í úrslitaleik í Smáranum.
Leikurinn var sá fyrsti af þremur á þessum lokadegi VÍS bikarvikunnar.
Karfan spjallaði við Óttar Ingimar Davíðsson leikmann Fjölnis eftir leik í Smáranum. Óttar var að leik loknum valinn besti leikmaður úrslitaleiksins, en á rúmum 29 mínútum spiluðum skilaði hann 28 stigum, 12 fráköstum, 9 stoðsendingum og 3 vörðum skotum.




