spot_img
HomeFréttirÓtrúleg flautukarfa Lebron dugði ekki til

Ótrúleg flautukarfa Lebron dugði ekki til

Lebron James og hans nýju félagar í LA Lakers eru enn í leit af sínum fyrsta sigri á tímabilinu. Í gær tapaði liðið gegn San Antonio Spurs í framlengingu.

Lebron James tryggði Lakers framlengingu með algjörlega ótrúlegri flautukörfu, þar sem hann tekur leikinn yfir og setur þriggja stiga skot af bílastæðinu. Það dugði hinsvegar skammt þar sem Patty Mills fór fyrir sínum mönnum í framlengingunni.

Lokastaðan 143-142 fyrir San Antonio en Lebron klúðraði stórum vítaskotum seint í framlengingunni.

Þetta er í fyrsta sinn frá árinu 2005 sem Lebron James tapar fyrstu þremur leikjum tímabilsins. Það er því ljóst að Lebron er að takast við nýjar áskoranir í Borg englanna.

Myndband af flautukörfu Lebron má finna hér að ofan en viðtal við hann hér að neðan.

Fréttir
- Auglýsing -