Örvar Kristjánsson hefur verið ráðinn þjálfari karlaliðs ÍR í körfuknattleik til næstu þriggja ára. RÚV.is greinir frá.
Á heimasíðu RÚV segir ennfremur:
ÍRingar urðu í níunda sæti úrvalsdeildarinnar í vor og komust því ekki í úrslitakeppnina. Jón Arnar Ingvarsson þjálfaði ÍR megnið af vetrinum, en Herbert Arnarson tók við af honum og stjórnaði liðinu í lokaleikjunum.
Nú hefur Örvar verið ráðinn til næstu þriggja ára. Hann var í vetur aðstoðarþjálfari Njarðvíkur og þar áður þjálfaði hann Fjölni í Grafarvogi.
www.ruv.is
Mynd/ ÍR: Elvar Guðmundsson formaður KKD ÍR og Örvar Kristjánsson nýráðinn þjálfari félagsins.



