HomeFréttirÖrvar: Sigurinn virkilega kærkominn

Örvar: Sigurinn virkilega kærkominn

Örvar Þór Kristjánsson þjálfari Fjölnis var sáttur með sigur sinna manna þegar Njarðvíkingar komu í heimsókn í Dalhúsin í gærkvöldi.
 
Jæja Örvar þú hlítur að vera mjög sáttur með þennan mikilvæga sigur og leik liðsins?
 
Gríðarlega sáttur enda afar mikilvægur sigur í baráttunni um sæti í úrslitakeppninni og fyrir tilverunni í deildinni.  Við vorum heilt yfir mun betri en Njarðvíkurliðið og sigurinn mjög sanngjarn að mínu mati. Við vorum að fá topp framlag frá mörgum leikmönnum og það skilar okkur fínum baráttu sigri. Leikurinn var annars að mínu mati ágætis skemmtun, og persónulega þótti mér gaman að fylgjast með rimmu þeirra Björgvins Ríkharðssonar og Elvars Friðrikssonar en þarna eru tveir ungir og afar efnilegir leikmenn á ferðinni sem sýndu skemmtilega takta.  Við vorum búnir að tapa nokkrum leikjum í röð og því var þessi sigur virkilega kærkominn og gefur okkur byr í seglin fyrir komandi átök.
 
Þér hefur væntanlega ekki leiðst að vinna uppeldisfélagið þitt og þið virðist með ákveðið tak á Njarðvíkurliðinu, hvað veldur?
 
Það er bara alltaf gaman að vinna, alveg sama hvaða lið það er en auðvitað er það sérstakt fyrir mig að mæta uppeldisfélaginu. Ég hef þjálfað flesta leikmenn liðsins og við stjórnvölin eru kærir vinir mínir en þegar kemur í leikinn gleymist það fljótt. Þetta er bara eins og hver annar leikur og þeir eru allir mikilvægir. Okkur hefur gengið vel með þá og sannast sagna bjóst ég við þeim grimmari eftir að hafa unnið þá í Ljónagryfjunni fyrr í vetur. Mínir menn voru hinsvegar bara gríðarlega flottir í gær og sigurinn verðskuldaður. Hrósa þó Njarðvíkurliðinu fyrir fínan vetur, þeir hafa gert flotta hluti og komið á óvart.  Snilldar move hjá þeim Frikka og Einari að sækja Palla Kristins úr B-liðinu en hann getur kennt þessum ungu pungum heilan helling. 
 
Nú er ótrúleg staða komin upp, þið eigið fínan séns á sæti í úrslitakeppninni en gætuð einnig fallið, hvernig lýst þér á framhaldið?
 
Þetta er eins og þú segir hálf ótrúlegt en sýnir kannski hvað deildin er ótrúlega jöfn (fyrir utan Val) og skemmtileg. Markmið okkar fyrir veturinn voru að komast í úrslitakeppnina og við hvikum ekki frá þeim en auðvitað er það líka klárlega markmið að halda sæti sínu meðal þeirra bestu miðað við stöðuna í dag. Það er ekki sjálfgefið og Haukarnir eru heldur betur að koma grimmir inn á lokakaflanum.  Við eigum eftir tvo leiki gegn Stjörnunni og Keflavík og stefnum á sigur í báðum leikjunum að sjálfsögðu og komast inn í úrslitakeppnina. Þetta eru topp lið sem við eigum eftir og verkefnið krefjandi en við förum í þetta fullir sjálfstrausts enda þýðir ekkert annað.
Fréttir
- Auglýsing -