Valsmenn unnu sannfærandi 42 stiga sigur á Ármanni í Vodafonehöllinni í kvöld, 111-69. Valsmenn tóku strax á fyrstu mínútunum afgerandi forskot með 16-0 byrjun á leiknum og gáfu forskotið aldrei eftir. Ármann átti aldrei séns og létu háa pressu Valsmanna trufla sig alltof mikið og áttu í vandræðum með að skipuleggja sig varnarlega. Jamie Stewart var stigahæstur í lið Vals í kvöld með 27 stig en næstu menn voru Benedikt Blönda með 18 stig og Leifur Árnason með 12 stig. Hjá Ármanni var Dagur Hrafn Pálsson stigahæstu með 21 stig og 10 fráköst en næstu menn voru Elvar Steinn Traustason með 14 stig og Pétur Þór Jakobsson með 12 stig.
Valsmenn byrjuðu leikinn betur og voru komnir í 8-0 þegar Ármann tók leikhlé þar sem Tómas Hermannsson fór yfir hlutina með sínum mönnum. Valsmenn pressuðu allan völlinn strax frá fyrstu mínútu sem Ármann átti í miklum vandræðum með að leysa. Þegar fyrsti leikhluti var hálfnaður var forskot Valsmanna komið upp í 18 stig og gestirnir ekki ennþá náð að skora stig. Fyrstu stig Ármanns skoraði svo Dagur Hrafn Pálsson af vítalínunni stuttu seinna, 18-2. Fyrstu stig Ármanns úr opnum leik komu svo eftir 8 mínútur af leik þegar Sigurbjörn Jónsson tók nettan snúning undir körfunni og lagði boltan ofaní, 21-5. Ármann náði að setja nokkrar körfur á lokahluta leikhlutans en forskot Vals þegar flautað var til loka fyrsta leikhluta var 14 stig, 23-9.
Ármann byrjaði annan leikhluta mun betur en það fyrsta og minnkuðu muninn niður í 12 stig þegar þrjár mínútur voru liðnar, 28-14. Valsmenn voru á þeim tímapunkti búnir að spila á 10 leikmönnum og virtist varnarleikur þeirra sem var mjög góður til að byrja með riðlast örlítið við það. Valsmenn héldu þessu forskoti næstu mínúturnar og rokkaði munurinn frá 13 og uppí 15 stig. Valsmenn áttu góðan kafla þegar um þrjár mínútur voru eftir af fyrri hálfleik og juku forskotið upp í 18 stig í stöðunni 41-23. Tómas tók þá aftur leikhlé fyrir gestina og var þá augljóslega að fara yfir lausnir fyrir sitt lið gegn pressu Valsmanna sem var að reynast þeim erfið. Valsmenn nýttu sér þann meðbyr vel og juku forskotið hratt á næstu mínútum. Þegar flautað var til hálfleiks var forskotið komið í 24 stig, 50-26.
Stigahæstur í lið Valsmanna í hálfleik var Jamie Stewart með 15 stig en næstu menn voru Benedikt Blöndal og Sigurður Rúnar Sigurðsson með 7 stig hvor. Hjá Ármann var Dagur Hrafn Pálsson stigahæstur með 8 stig en næstu menn voru Pétur Þór Jakobsson með 6 stig og Sigurbjörn Jónsson með 4 stig og 6 fráköst.
Liðin skiptust nokkuð jafnt á stigum í þriðja leikhluta og lítið markvert gerðist. Hvorugt liðið var að spila fallegan bolta og þónokkuð um mistök á báða bóga. Þegar leikhlutinn var hálfnaður munaði 25 stigum, 62-37. Leikurinn spilaðist svipað út leikhlutan, bæði lið voru dugleg að skipta á leikmönnum og aðeins einn leikmaður á skýrslu hafði þá ekki spilað í leiknum. Þegar einn leikhluti var eftir var forskot Valsmanna 23 stig, 72-49.
Valsmenn byrjuðu fjórða leikhluta betur og náðu forskotinu upp í 30 stig í stöðunni 83-53 þegar fjórar mínútur voru liðnar af leikhlutanum. Tveir þristar í röð frá Pétri Jakobssyni lagaði hins vegar stöðuna fyrri Ármann stuttu seinna og minnkaði muninn í 26 stig, 85-59. Valsmenn voru hins vegar fljótir að refsa og var munurinn aftur kominn upp í 30 stig stuttu seinna og sigur Valsmanna löngu ljós. Heimamenn hættu aldrei og pressuðu stíft alveg fram á síðustu mínútu leiksins og uppskáru á endanum 42 stiga sigur, 111-69.
umfjöllun: [email protected]
Mynd úr safni : [email protected]