HomeBónus deildinBónus deild karlaÖruggur sigur Íslandsmeistara Stjörnunnar

Öruggur sigur Íslandsmeistara Stjörnunnar

Það var áþreifanleg stemmning í Garðabænum þegar að tíðindamaður Körfunnar mætti í hús að bera leik 3 milli Stjörnunnar og KR augum. Þá var verið að hleypa inn í salinn í hollum og náði röðin langt út fyrir dyrnar, gylltur vökvi flæddi og hamborgaralyktin fyllti vitin. Nokkrir dagfarsprúðir stuðningsmenn létu undirritaðan vita að þeir hefðu lesið greiningu hans á síðasta leik í Ásgarði og voru misánægðir með skrifin. Allir skyldu þó sáttir enda fullkomin óþarfi að vera langrækinn í þessum efnum. En stuðningsmennirnir stóðu sig vel eins og alltaf.

Fyrri hálfleikur var svipaður fyrri hálfleiknum á heimavelli Stjörnunnar sem fór fram rétt fyrir páska. Hvorugu liðinu tókst að slíta sig frá og var jafnt á öllum tölum. Enn voru menn mikið að væla í dómurum leiksins sem tókst þó að hafa fína stjórn á hlutunum. Ægir Þór Steinarsson var einstaklega gíraður í fyrri hálfleiknum líkt og hann hefði kjamsað á rip-fuel fyrir leik en Þórir Guðmundur, sem hafði átt skínandi leik á Meistaravöllum var heillum horfinn. Jafnt í hálfleik.

Seinni hálfleikurinn var hins vegar alger eign Stjörnumanna. Þeir kæfðu Toms Leimanis sem hafði átt fínan fyrri hálfleik sem og Þóri og KR sóknin náði sér engan vegin á strik. Mest allur fjórði leikhlutinn var svo það sem er stundum kallaður ruslatími. Stjarnan keyrði einfaldlega yfir frekar slaka KR-inga og vann auðveldan sigur, 104-80. Allt Byrjunarlið stjörnunnar skoraði á milli 13 og 18 stig og Bjarni Guðmann og Pablo Bertone bættu við 9 stigum hvor.

Næstu skref eru einföld. Sigur eða sumarfrí fyrir Vesturbæinga.

Tölfræði leiks

Fréttir
- Auglýsing -