Hattarmenn frá Egilsstoðum áttu frekar þægilegt kvöld í íþróttahúsinu við Vestugötu á Akranesi áðan. Skagamenn komust í 5-3 og 7-6 en eftir það var leikurinn Hattar sem héldu áhyggjulausu forskoti á ÍA það sem eftir lifði leiks og unnu að lokum mjög öruggan 66 – 104 sigur en lokatölurnar segja ekki alveg alla sögu leiksins þannig. Hattarmenn geta farið heim með ónotaða flugeldana sína og geymt þá fyrir gamlárskvöld. Að sama skapi þá skaut ÍA engum neyðarblysum á loft enda kannski engin ástæða til þannig. Það er líka hvoru tveggja bannað á þessum árstíma.
Þáttaskil
Það má segja að leikurinn hafi verið nokkuð keimlíkur þar til síðustu 5 mínútur leiksins runnu sitt skeið en þá var staðan ÍA 64 og Höttur 81. Höttur skoraði 23 stig það sem eftir lifði leiks á meðan ÍA skoraði 2.
Atvik leiksins
Í upphafi leiksins gengu ungir iðkendur ÍA inn á völlinn og gáfu afrakstur sölu Bleiku og Bláu slaufunnar til Englaforeldra á Akranesi. Falleg stund og í anda aðventunnar og atvik leiksins að mati textahöfundar.
Í hnotskurn
Höttur kom í þennan leik og trúði því að þeir væru að fara að vinna og trúðu því ekki að þeir væru að fara að tapa. ÍA menn virtust ekki vera vissir hvort þeir ættu séns í leikinn og um leið og Höttur spyrndi sér aðeins frá þeim sleppti ÍA bara takinu og Hattarmenn léku lausum hala. Eftir það var í raun ekki að spyrja að leikslokum.
Mynd / Jónas H. Ottósson
Umfjöllun / HGH




