Valur lék sinn annan leik eftir skiptinguna í Bónusdeild kvenna, þegar þær fengu Haukakonur í heimsókn. Liðin unnu hvort annað í fyrri viðureignum, bæði á útivelli. Leikurinn var skrítinn, mikið af mistökum en gestirnir alltaf með undirtökin og enduðu á að vinna stórt 59-85.
Það var smá óðagot til að byrja með, en Haukakonur voru á undan að ná valdi á sínum leik og tóku frumkvæðið í leiknum. Voru mjög ákafar í pressu vörn og Valur átti oft í mestu vandræðum með að leysa það. Þetta var leikhluti glataðra bolta, 13 samtals glataðir boltar sem skiptust nokkuð jafnt. Valur náðu þó aðeins að rétta úr kútnum og átti möguleika að komast yfir í lokin á fyrsta leikhluta, en tókst ekki og staðan því, Haukum í vil, 15-16.
Sama boltaglötunin, þá sérstaklega Valsmegin hélt áfram í öðrum leikhluta. Hauka gengu á lagið og Sólrún Inga setti niður 2 stóra þrista og munurinn var sex stig þegar Jamil fékk nóg og tók leikhlé. Það gerði nú ekki nein kraftaverk, enda skotnýting heimakvenna langt undir öllum velsæmismörkum. En þrátt fyrir hörmulega lágt stigaskor, var stigaskor Haukanna ekkert mikið betra og forystan aðeins 6 stig í leikhléi, 28-34, já þið lásuð rétt 28 -34, aðeins 62 stig skoruð í hálfleiknum.
Haukakonur komu síðan að krafti í seinni hálfleikinn, settu niður tvo þrista og náðu meiri forystu og um leið góðri stemningu innan liðsins. Valskonur bitu samt í skjaldarendurnar og eftir ansi kómískar mínútur, minnkuðu þær muninn. Við tók síðan einhver farsi, mistök á báða bóga og allt í einum allsherjar kaos. Vel útfærðar sóknir og varnarleikur í kjölfarið skilaði Haukum 8 stiga forystu fyrir loka leikhlutann, 46-54.
Haukakonur voru ekkert á því að hleypa Valskonum eitthvað í leikinn, sem reyndu þó koma sér inn í leikinn, en hittnin var ekki til staðar og því gekk þeim bölvanlega að komast eitthvað nær Haukunum. Þvert á móti þá gekk flest upp hjá Haukunum, þær voru mun grimmari í vörn og sókn, náðu mest 26 stiga forystu og enduðu á að sigra nokkuð örugglega, 59-85.
Hjá Valskonum var fátt um fína drætti, eina ljósið í myrkrinu var Ásta Júlía með 16 stig og 6 fráköst, Reshawna Stone skoraði 21 stig, en maður vill samst sjá betri leik frá henni. Alyssa Cerina skoraði 15 stig en var með afleita skotnýtingu og virtist vera eitthvað pirruð í leiknum. Hjá Haukum var Krystal-Jade Freeman með mjög góðan leik, fer ekki mikið fyrir henni á vellinum en skilaði sínu og vel það, með 18 stig og 8 fráköst. Amandine Toi kom sterk í síðasta leikhluta og setti niður 19 stig. Tinna Guðrúna var svo með 18 stig.
Næsti leikur hjá Val er miðvikudaginn 4. mars, þegar þær heimsækja Grindavík, á sama tíma heimsækja Haukarnir Njarðvík.





