spot_img
HomeFréttirÖruggt hjá Lúx í opnunarleiknum

Öruggt hjá Lúx í opnunarleiknum

Fyrsta leik Smáþjóðaleikanna í körfuknattleik er lokið þar sem Lúxemborg hafði öruggan sigur á Mónakó í kvennaflokki, 88.-55.

Lúxemborg tók snemma forystu í leiknum og lét hana aldrei af hendi. Mónakókonum skorti tilfinnanlega hæð í teiginn sinn og áttu þar af leiðandi í nokkru basli. Marine Peglion var stigahæst í liði Mónakó með 20 stig, 8 fráköst og 4 stoðsendingar en Cathy Schmit átti góðan leik í liði Lúx með 13 stig, 5 fráköst og 9 stoðsendingar. 

Tölfræði leiksins má nálgast hér

Nú á eftir kl. 17:00 hefst svo viðureign Svartfjallalands og Lúxemborgar í karlaflokki. 

Mynd/ [email protected] – Cathy Schmit átti góðan leik í liði Lúxemborgar í dag með 13 stig, 5 fráköst og 9 stoðsendingar. 

Fréttir
- Auglýsing -