Í gærkvöld mættust tvö sterk lið í unglingaflokki uppi í Dalhúsum í Grafarvoginum. Samblandað lið frá Snæfelli og Skallagrími mætti til leiks í unglingaflokki, leikurinn byrjaði jafnt og með miklum hraða. Ægir Þór Steinarsson fékk fljótt á sig tvær villur og var skipt út fyrir Einar í fyrsta leikhluta og kom svo lítið við sögu það sem eftir var leiks, sat rólegur á bekknum og hvíldi sig.
Einar og Elvar sem tóku dripplarann til skiptis voru að standa sig mjög vel. Hjá Snæfell var leimkmaður númer 14. hann Kristján með mjög góðan leik eða 30 stig og stigahæstur í sínu liði, Egill lenti illa í gólfinu eftir frákast og þurfti kælipoka á bæði hné eftir það og þá var hann með 9 stig og mikil barátta í honum en gat ekki hlaupið eftir þetta og sat á bekknum og hvíldi sig.
Fjölnir var yfir í hálfleik og juku svo áfram það sem eftir var leiks, og sigruðu með 107 – 79
Stigaskor Fjölnis :
Tómas Tómasson 23 stig, Arnþór 23 stig, Friðrik 11stig, Elvar 11stig, Haukur 8stig, Siggi 8stig, Leyfur 6stig, Trausti 6stig, Björgvin 4stig, Óskar 3stig, Einar 2stig, Ægir 2stig,
Stigaskor Snægríms:
Kristján 30stig, Birgir Sverris 11stig, Guðni 10stig, Egill 9stig, Davíð 6stig, Magnús 6stig , Snjólfur 3stig, Ekvar 2 stig, Birgir Péturs 2stig
Texti og myndir: Karl West Karlsson




