HomeNeðri deildir1. deild karlaÖruggir sigrar hjá Selfossi og Breiðabliki í 1. deild karla

Öruggir sigrar hjá Selfossi og Breiðabliki í 1. deild karla

Tveir leikir fóru fram í 1. deild karla í kvöld þar sem Selfoss og Breiðablik fögnuðu öruggum sigrum.  

Á Selfossi lögðu heimamenn grunninn að sigrinum með frábærum öðrum leikhluta (34–20) og unnu Skallagrím örugglega, 86–69. Avery Cordell Sullivan fór fyrir liði Selfoss með 20 stig, 13 fráköst og átta stoðsendingar, en Tristan Máni Morthens og Halldór Benjamín Halldórsson skoruðu báðir 19 stig. Milorad Sedlarevic var stigahæstur hjá Borgnesingum með 16 stig.  

Fyrir norðan unnu Blikar 104–88 útisigur á Þór Akureyri eftir að hafa stjórnað leiknum stærstan hluta tímans. Adrian Darren McIntyre fór fyrir gestunum með 30 stig og sjö fráköst á meðan Jalen Green bar af hjá Þórsurum með 29 stig.  

Breiðablik er komið með fjögur stig í efri hlutanum og Selfoss fagnaði sínum fyrsta sigri, en Skallagrímur og Þór Akureyri eru enn án stiga á botninum. 

Tölfræði leikja

Fréttir
- Auglýsing -