HomeFréttirOrri til liðs við Skallagrím - Hörður og Sigmar verða áfram

Orri til liðs við Skallagrím – Hörður og Sigmar verða áfram

Orri Jónsson leikur með Skallagrím á næstu leiktíð en hann kemur frá FSu í 1. deild karla þar sem hann var með 15,7 stig og 4,1 frákast að meðaltali í leik. Þá hafa þeir Sigmar Egilsson og Hörður Helgi Hreiðarsson ákveðið að taka slaginn aftur með nýliðum Skallagríms í úrvalsdeild.
Hörður og Sigmar voru burðarásar hjá Borgnesingum í 1. deildinni á síðasta tímabili en Sigmar var af kollegum sínum í Borgarnesi valinn besti leikmaður tímabilsins og úrslitakeppninnar í 1. deild karla en hann verður fertugur á næsta ári.
 
 
Mynd/ www.skallagrimur.is – Orri Jónsson
  
Fréttir
- Auglýsing -